2. júní 2010
Jón Oddgeir nær í bát
Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Sandgerði,Jón Oddgeir, var kallað út um klukkan 9:30 í morgun vegna vélarvana báts sem var staddur um sjö sjómílum NNA af Sandgerði. Tveir menn voru um borð í bátnum.
Björgunarskipið var komið á staðinn um klukkustund eftir að útkall barst og dróg bátinn til hafnar í Sandgerði.
Báturinn sem um ræðir heitir Þórdís og er 6 tonna plastbátur.
Ferðinn gekk í alla staði vel og var komið í land í Sandgerði um 12:30
Arnar Steinn Elísson
BS/mynd Siggeir Pálsson og Alma Ómarsdóttir

Til baka