21. apríl 2010
F1 Rauður bátur rekur hratt að landi í Garði
Björgunarsveitin Suðurnes ásamt tveimur örðum sveitum á Suðurnesjum voru nú í morgunsárið kölluð út vegna báts sem rak hratt að landi í Garði og eru 2 menn um boð. Björgunarskipið Hannes Þ Hafstein var mannað samstundis eins og léttabáturinn Siggi Gísla og björgunarbáturinn Þorsteinn frá Sandgerði en þegar að Hannes Þ var við það að leggja úr höfn kom afturkall og var þá léttabátur af varðskipi Landhelgisgæslunar kominn með bátinn í tog. Littlu mátti muna að illa færi en báturinn var aðeins um 200 -300 metra frá landi þegar að léttabátur gæslunar kom á staðinn. Er gæslan nú að koma bátnum til hafnar í Keflavík.
Arnar Steinn Elísson
Til baka