Við heitum unglingadeildin Klettur, deildin var stofnuð þann 8.november. Í unglingadeilinni eru 15 manns það er mjög mikill félagsandi. Við fórum á Gufuskála þar var mjög gaman og það sem skemmtilegast var það að við fengum að siga niður 20 m og eina sem við höfðum var það að það var súla sem helt turninum uppi sem við þurftum að ná í til að spyrna okkur en það var svo langt i hana að við fórum bara frekar hratt niður i frjálsu falli. Það var geggjað stuð þarna og við skemmtum okkur mjög vel. Það var tekið upp kynningamyndband fyrir útivistaskóla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar en það var líka partur af því sem við vorum að gera í Gufuskálum. við fórum í Rústabjörgun þar sem við þurftum að nota reykköfunargrímur og náttúrulega hjálma. Kennd var skyndihjálp á staðnum. Fluglínutæki var prófað. Þeir sem fóru fannst mjög gaman og krefjandi. Þeir sem fóru fannst skemmtilegast að síga. Síðan 2 vikum seinna fórum við í ferðarlag eða það má orða það svo en við áttum að fara í Heiðarból sem að er skátaskáli við Hábjalla en það er bara búið að loka honum þannig að við sváfum bara í björgunarsveitarhúsinu en á föstudagskvöldinu var næturleikur þar sem við fengum að spreyta okkur með snjóflóðaýla. Á laugardeginum var farið í leit um morgunninn sem við þurftum að leita að hinum ýmsu hlutum t.d blýanti, skrúfum, batteríi o.f.l. Farið á Háabjalla og þar var sigið og fengum við að prufa rólu svo kallaða. Um kvöldið fengum við að fara í klifurvegginn en að því loknu var farið i langann og strangann nætur leik sem tók virkilega á það voru 2 lið sem kepptust á við hvort annað en hringurinn sem var hlaupinn var björgunarsveitarhús, Kostur, Gimli, Njarðvikurkirkja, Njarðvikurskóli, björgunarsveitarhús, steypustöðin að Fitjum, ÓB, slippur og svo að lokum björgunarsveitarhúsið. Liðin hlupu hringina en hringnum var skipt þannig að annað liðið byrjaði hjá Kosti og hitt hjá steypustöðinni. Svo á sunnudeiginum var farið á sjó og vorum við þar eitthvað í kringum 4 klukkutíma og það var mjög gaman svo var komið aftur uppí hús og bara tekið til og hlýjað sér. Þeir sem eru í unglingadeildinni finnst mjög gaman á fundum og þetta er fyrsta árið sem Unglingadeildin er starfandi í Reykjanesbæ. Og við sem erum i unglingadeildinni Klett mælum með þessu frábæra starfi og vonum bara að sjá sem flesta á nýju ári.
Jói, Jón Þór og Kristó.
Dagbók
Helgin 17-19.02.06
Unglingardeildin Klettur fór í ferð núna um helgina. Sofið var í húsi björgunarsveitarinnar og var mikið fjör á föstudagskvöldinu með Singstar og bíómyndagleði. Auðvita stóðu umsjónarmenn sig best í Singstar og unnu með afgerandi hætti. Á laugardeginum var svo haldið í ferð á Þorbjörn í mikilli rigningu og roki en stóðu krakkarnir sig með prýði. Á sunnudeginum var svo haldið í gömlu sundhöllina í Keflavík og var farið að kafa þar undir leiðsögn Tómasar Knútssonar. Krökkunum fannst það allveg rosalega gaman og var það góður endir á góðri helgi. Við umsjónarmenn og krakkarnir í UD-Klett viljum þakka Tómasi fyrir og einnig viljum við þakka Björgunarsveitinni Sigurvon fyrir lán á Scooterum sem slógu í gegn þarna í sundlauginni. Einnig viljum við þakka Jóa Bert og Samm fyrir stuðning.
Kveðja Arnar, Sævar og Brynjar umsjónarmenn UD-Kletts.