Svæðisstjórn fer með tæknilega stjórn leitar- og björgunaraðgerða sem boðað er til innan viðkomandi svæðis fyrir hönd Landsstjórnar.
Samanber reglugerð nr. 289 frá 7. apríl 2003 um leit og björgun á landi og samstarf lögreglu og björgunarsveita.
Svæðisstjórn er tengiliður björgunarsveita við lögreglu í umdæminu þegar björgunarsveitir eru kallaðar til.
Hún starfar í nánu samstarfi við vettvangsstjóra lögreglu sem ber ábyrgð á framgangi aðgerða og er tengiliður við önnur stjórnvöld í umdæminu.
Svæðisstjórn lýtur boðvaldi hans varðandi samræmdar ákvarðanir vegna aðgerða.
Björgunarsveitin Suðurnes tilheyri svæði 2 í svæðaskiptingu Slysvarnarfélagsins Landsbjargar og erum við því aðilar að svæðisstjórn á svæði 2 og eigum við fulltrúa þar.
Boðunarspjald svæðisstjórnar á svæði 2 er hér til hliðar.