Leitar- og björgunarhundar Björgunarsveitarinnar Suðurnes

Leitarhundflokkur Björgunarsveitarinnar Suðurnes er öflugur flokkur með mikla reynslu,
sem hefur um að ráða tveimur hundateymum.
Teymin halda stífar æfingar á hundum og björgunarmönnum.
Níu mánuði ársins er æft tvisvar í viku víðavangsleit og þrjá mánuði ársins er æft einu sinni í viku snjóflóðaleit.
Samhliða leitaræfingum er umhverfisþjálfun fyrir hundana og önnur þjálfun sem björgunarmaður þarf að hafa.
Flokkurinn er vel búinn og þjálfaður til að sinna útköllum hvert á land sem er með stuttum fyrirvara,
hvort sem er landleiðis, sjóleiðis eða í lofti.
Teymi Halldór og Skuggi

Skuggi Border Colle
Gráður teymis;
A Víðavangsleit
A Snjóflóðaleit
Grunnþjálfun í Rústabjörgun
Teymi Guðmundur Helgi og Tumi

Tumi Labrador Retriever
Gráður teymis;
Grunnþjálfun Víðavangsleit
Grunnþjálfun Snjóflóðaleit
Grunnþjálfun í Rústabjörgun