Kynning á fyrstuhjálparbúnaði Björgunarsveitarinnar Suðurnes.
Nálægðin við Keflavíkurflugvöll gerir það að verkum að Björgunarsveitin Suðurnes er með fyrstu björgunarsveitum sem koma á vettvang ef stórslys verða þar. Þar á bæ er björgunarsveitarfólk greinilega í stakk búið að takast á við stóráföll.
Björgunarsveitin Suðurnes hefur sett á laggirnar mjög öfluga fyrstuhjálparsveit sem hefur að skipa 20 vel þjálfuðu fyrstuhjálparfólki frá B.S sem öll hafa lokið námskeiðum á borð við skyndihjálp 3, BTLS (Basic Trauma Life Support), WFR (Wilderness First Responder) eða eru leiðbeinendur í fyrstu hjálp, 5 neyðarflutningsmönnum frá Brunavörnum Suðurnesja og síðan bílstjóra og þeim sem sjá um uppsetningu og rekstur á búnaðinum. Markmið þessarar sveitar er að geta brugðist við hópslysum sem hin almenna neyðarþjónusta ræður ekki við s.s. rútuslysum, flugslysum, náttúruhamförum, stórbrunum o.s.frv. Búnaður sveitarinnar er geymdur í 10 rúmmetra hólfuðum gámi þar sem hver hlutur á sinn sama stað. Gámurinn var smíðaður af M.T bílum á Ólafsfirði. Hann er á kerru sem auðveldlega má losa af ef hífa þarf gáminn um borð í skip eða að húkka honum í þyrlu. Af búnaðinum má fyrst nefna tvær 37 m2 greiningarstöðvar sem eru braggalaga uppblásin tjöld frá Trelleborg í Svíþjóð. Hægt er að hafa tjöldin aðskilin eða að tengja þau saman. Tjöldunum eru haldin uppi af uppblásnum súlum sem rafmagnsblásarar sjá um að blása í. Einungis tekur 15 mínútur að setja upp bæði tjöldin. Tjöldin þola mikinn vind án þess að þau haggast mikið. Í gámnum eru tvær rafstöðvar ásamt öllum nauðsynlegum fylgihlutum s.s. köplum, ljóskösturum og flúorljósum til nota inni í tjöldunum. Allur nauðsynlegur búnaður til að veita fyrstuhjálp út á slysavettvangi er einnig í gámnum s.s. vinnustöðvar fyrir greiningarsveitir, sorabúnaður (stórslysabúnaður fyrir 100 manna slys), vökvar og súrefni, bakbretti, börur, kedvesti, hálskragar, spelkur, sogdælur, barkaþræðingarsett, sprautur og nálar o.fl. Einnig er flóðlýsingabúnaður, þyrlulendingarsett, verkfæri, sigbúnaður og skel/sked, einstaklingssjúkratöskur og áfyllingar, höfuðluktir, hjálmar, talstöðvar, einkennisfatnaður, borðar og merkingar auk ýmiss annars búnaðar í gámnum. Nefna má að í gámnum er búnaður frá Rauðakrossdeild Suðurnesja til uppsetningar á fjöldahjálparstöð. Verkefni hópsins geta verið ýmis konar t.d. að setja upp og starfa í greiningarstöðvum og veita fyrstu hjálp á vettvangi. Fyrstuhjálparhópurinn þjónar öllu landinu og getur jafnvel farið erlendis sé þess óskað.
Introduction of the first aid equipment from Bjorgunarsveitin Sudurnes.
Located in the close vicinity of Keflavik airport the rescue team Bjorgunarsveitin Sudurnes is one of the first rescue team that will arrive on a seen if a catastrophic accident would occur on the airfield. The team has in deed qualified team members and equipment for the task.
Organized within the team is a 20 person well trained first aid group. All team members have finished advanced courses in first aid such as Basic Trauma Life Support and Wilderness First Responder, or are qualified first aid instructors. In addition to the group are 5 paramedic personnel from Brunavornum Suðurnesja, the local fire brigade. Logistical support is provided from other team members and also a driver is assigned to the group.
The main objective is to be available to provide first aid services when regular emergency organizations can not cope with the situation, such as air plane crashes, large motor vehicular accidents, large fires, earth quakes or other catastrophic events.
The equipment for the group is kept in a 10 m3 segregated 6 compartment container built by the local manufacturer M.T.. The container is built on a portable trailer that is equipped with quick release pins to detach the container for aerial lifts. The main equipment consists of two 37 m2 inflatable foul whether tents from the manufacturer Trelleborg in Sweden, that are inter connected to make up a triage center. It only takes 15 minutes to raise the tents by using the electrical pump provided.
Of the four main compartments three hold the advanced firs aid equipment for stabilizing up to 100 trauma victims. The equipment consists of a workstation for triage teams, oxygen monitors, oxygen support equipment, i.v. liquids, back supports, neck supports, splints, suction pumps and 25 stretchers.
The fourth compartment holds individual equipments such as communication equipment, carrying cases for individual first aid kits, safety helmets with lights, rescue ropes, rescue harnesses and identification uniforms. Also stored it this compartment are registration forms for the Red Cross to use for registration of the injured.
For logistical support to the operation the container is equipped with two portable electrical generators for operating the pump, flood lighting, illumination in the tents and other electrical equipment.
As mention before the task for this group is to provide triage, or on seen first aid services during a large incident. This highly sophisticated, compact and mobile equipment is the only on of its kind in the country and can be mobilized not only in Iceland but abroad if requested.
Best regards
Gunnar Stefansson
Bjorgunarsveitin Sudurnes rescue team leader